Lífsskrá

Hvað er lífsskrá?
Lífsskrá er skjal sem greinir frá óskum fólks um meðferð við lífslok, geti það ekki sjálft tekið þátt í ákvörðunum um þá meðferð vegna andlegs eða líkamlegs ástands. Lífsskrá er gerð þegar fólk er til þess hæft og getur metið kosti sem til greina koma, verði viðkomandi svo andlega eða líkamlega skaðaður að litlar eða nær engar líkur eru taldar á bata eða á því að unnt sé að lifa innihaldsríku lífi á ný. Lífsskráin tekur hins vegar ekki gildi fyrr en viðkomandi er ekki lengur hæfur til að kveða upp úr um vilja sinn.

Tilgangur
Tilgangur lífsskrár er að einstaklingur fái að deyja með reisn og að aðstandendur séu eins sáttir við ákvarðanir sem teknar eru við lífslok og kostur er. Með lífsskránni hefur einkstaklingurinn sjálfur tekið ákvörðun um að ekki sé hafin meðferð eða meðferð haldið áfram sem ekki hefur í för með sér raunhæfa von um lækningu eða líkn og þá sérstaklega meðferð og rannsóknir sem einungis eru íþyngjandi og lengja dauðastríðið. Þess í stað er lögð áhersla á líknandi meðferð þar sem markmið er að láta sjúklingnum líða eins vel og kostur er.

Í lögum nr. 74/1997 er kveðið á um rétt sjúklings til að ákveða sjálfur hvort hann þiggur meðferð eða ekki. Engin ákvæði eru hins vegar sérstaklega um lífsskrá en fyrirfram ákvörðun af því tagi sem er í lífsskránni er hins vegar í samræmi við lögin og vinnuvenjur í heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

Í lífsskrá eru tvö mikilvæg atriði, annars vegar óskir um meðferð við lok lífs, geti viðkomandi ekki tekið þátt í ákvörðunum sjálfur og hins vegar tilnefning umboðsmanns sem hefur umboð til að koma fram fyrir hönd viðkomandi. Umboðsmaður hefur umboð til að taka þátt í umræðum um óskir varðandi meðferð við lífslok, hvort heldur það er að þiggja, hafna eða draga til baka meðferð.

Umboðsmaður þarf að vera maður sem viðkomandi treystir vel og getur verið maki eða lífsförunautur, ættingi eða náinn vinur. Unnt er að tilnefna varamenn umboðsmanns geti sá sem tilnefndur er sem umboðsmaður ekki sinnt starfinu af einhverjum ástæðum. Mikilvægt er að viðkomandi ræði óskir sínar við umboðsmann sinn þannig að hann viti eins vel og kostur er hverjar þær eru.

Líffæragjöf
Í lífsskránni er einnig gefinn kostur á því að taka afstöðu til hvort fólk vill gefa líffæri eða vefi og gefinn kostur á nánari skýringum þar um. Ekki er þörf á að fylla þennan hluta út þótt gengið sé frá öðrum hlutum skrárinnar.

Af hverju er lífsskrá mikilvæg?
Tvær meginástæður eru fyrir því að skrifa undir lífsskrá. Annars vegar vilji fólks til að hafa sjálft stjórn á ákvörðunum sem teknar eru um meðferð við lok lífs þeirra. Hins vegar léttir lífsskráin þessum ákvörðunum af nánustu aðstandendum, en slíkar ákvarðanir eru oft mjög erfiðar fyrir þá hafi þeir ekki upplýsingar um óskir viðkomandi.

Jafnvel þótt enginn skoðanamunur sé milli aðstandenda getur aðkoma þeirra að ákvörðunum um líf og dauða verið þungbær og jafnvel skilið eftir sektarkennd meðal þeirra.

Ef viðkomandi segir engum óskir sínar mun enginn vita þær og slíkt getur boðið vandamálum heim. Lífsskrá leysir þetta.

Hvernig á að fylla út lífsskrána?
Lífsskrá þarf að undirrita í fjórum eintökum í votta viðurvist eins og fram kemur á meðfylgjandi eyðublaði. Viðkomandi heldur sjálfur einu eintaki og sendir eitt til landlæknis. Jafnframt fær umboðsmaður eitt eintak og mjög æskilegt er að heimilislæknir eða annar læknir einstaklingsins fái eintak. Upplýsingarnar verða vistaðar í gagnabanka hjá Landlæknisembættinu sem aðgangur verður að fyrir heilbrigðisstofnanir þannig að unnt sé að fá upplýsingar strax um hvort viðkomandi hafi skrifað undir lífsskrá.

Á sama hátt er gert ráð fyrir að upplýsingar um þá sem vilja gefa líffæri og skilyrði þeirra gjafa verði einnig færðar í sérstakan gagnabanka við Landlæknisembættið.

Mælt er með því að gengið sé frá lífsskrá í samvinnu við lækni viðkomandi þótt það sé ekki skilyrði. Mikill akkur er hins vegar í því að ræða málið við lækni þannig að lífsskráin verði sem skýrust. Nauðsynlegt er að undirskrift sé vottuð af öðrum en umboðsmanni eða varamönnum hans. Lífsskrár er ekki getið í íslenskum lögum en hún hefur hins vegar mikið gildi sem lögmætt plagg. Heilbrigðisstarfsfólki ber því skilyrðislaust að fara eftir þeim vilja sem fram kemur í lífsskránni.

Unnt er að skipta um skoðun og fella lífsskrána úr gildi hvenær sem er. Þá er hægt að gera breytingar á tilnefningu umboðsmanns ef persónulegar aðstæður breytast í fjölskyldulífi t.d. við giftingu, skilnað eða andlát.


Ef áhugi er á að fylla út lífsskrá vinsamlegast hafið eftirfarandi í huga:

  1. Hægt er að nálgast eyðublöðin og leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins (sjá neðst), einnig má nálgast þau á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum. Prenta þarf út fjögur eintök og undirrita þau öll.

    A.  Eitt eintak sendist Landlæknisembættinu, Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnesi.
    B.  Einstaklingurinn geymir sjálfur eitt eintak.
    C.  Umboðsmaður fær eitt eintak.
    D.  Eitt eintak er sent heimilislækni eða öðrum lækni sem sinnir einstaklingnum eða er kunnugur aðstæðum hans.

  2. Mikilvægt er að kynna umboðsmanni óskir sínar og að hann kynni sér um hvað lífsskráin snýst.
  3. Eintak Landlæknisembættisins er geymt í gagnaskrá embættisins og verður til afnota fyrir heilbrigðisstarfsfólk þegar með þarf.
  4. Unnt er að breyta lífsskránni hvenær sem er eða fella hana úr gildi. Ber þá að hafa samband við Landlæknisembættið.

Eyðublað og leiðbeiningar:

Lífsskrá. Yfirlýsing vegna meðferðar við lífslok (pdf)
Leiðbeiningar um lífsskrá og útfyllingu eyðublaðs (pdf)

Uppfært 5. febrúar 2009

 



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli