Rítalín-kort

Dreifibréf Landlæknisembættisins nr. 1/2001

Notkun "gulu kortanna" hætt

Árið 1986 birti heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið auglýsingu um takmarkanir á ávísun lækna á amfetamín og nokkur fleiri lyf, einkum medhylphenidatum (Ritalín).

Ábendingar fyrir þessum lyfjum eru annars vegar svefnsýki, hins vegar ofvirkni/athyglisbrestur. Til þess að fá útskrifuð slík lyf hafa læknar hingað til þurft að sækja um kort fyrir hvern einstakling til landlæknis, sem heimilar notkun þessara lyfja með útgáfu korts til ákveðins tíma.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá árinu 1986 og er nú ljóst að notkun þessara lyfja kemur að góðu gagni í meðferð á ADHD hjá börnum og unglingum. Er nú svo komið að ekki þykir lengur ástæða til að ákvæði auglýsingarinnar frá 1986 séu enn í gildi og verður hún felld úr gildi frá og með 1. apríl 2001, sbr. reglugerð nr. 233/2001. Eftir sem áður er brýnt fyrir læknum að hafa fyllstu gát á ávísun þessara lyfja vegna barna með meint ADHD. Það eru tilmæli landlæknis að greining sé í samvinnu við barna- og unglingageðlækna eða barnalækna með undirsérgreinar í taugasjúkdómum barna og hæfingu barna eða skyldum greinum, þótt framhaldsmeðferð verði hér eftir sem hingað til að verulegu leiti í höndum heimilislækna.

Á síðustu árum hafa komið fram greinar sem benda til þess að ofangreind lyf geti einnig verið árangursrík við meðferð fullorðinna, en rannsóknir á því sviði eru mun færri en hjá börnum. Landlæknir brýnir fyrir læknum að gæta ýtrusutu varúðar við ávísun þessara lyfja hjá fullorðnum og að ávísa þeim ekki nema önnur meðferð sé fullreynd. Einnig að þeim sé ekki ávísað á sjúklinga með meint ADHD, ef um fíkn er að ræða.

Eftir sem áður verður fylgst með notkun þessara lyfja gegnum Lyfjastofnun, enda eru þau eftirritunarskyld.


27. mars 2001
Landlæknir

Uppfært 4. mars 2007




Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli