Fréttir

07.12.2001

Félag um lýðheilsu

Stofnfundur Félags um lýðheilsu var haldinn 3. desember 2001 í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur og var hann fjölsóttur. Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra ávarpaði fundinn og Sigurður Guðmundsson landlæknir flutti erindi um lýðheilsu á Íslandi.

Félagið er regnhlífarsamtök áhugafólks um lýðheilsu þar sem tækifæri gefst til að stilla saman strengi og vinna að nýjum verkefnum á sviði forvarna og heilsueflingar.

Lýðheilsa varðar félagslega og heilsufarslega þætti þjóða og hópa. Lýðheilsa miðar að því að bæta heilbrigði, lengja líf og bæta lífsgæði þjóða og hópa með almennri heilsuvernd, heilsueflingu, sjúkdómavörnum og annarri heilbrigðisþjónustu.

Félag um lýðheilsu (á ensku The Icelandic Public Health Association) er félag fagmanna og áhugafólks um lýðheilsu á Íslandi. Tilgangur félagsins er að:

  • Hvetja til þess að heilbrigðissjónarmiða sem eru byggð á bestu þekkingu á hverjum tíma sé gætt við stefnumótun og aðgerðir stjórnvalda.
  • Vekja athygli almennings á möguleikum til að hafa áhrif á eigið heilbrigði og leiðir til heilsueflingar.
  • Hvetja til samstarfs þeirra sem starfa á vettvangi lýðheilsu og þeirra sem geta haft áhrif á heilsufar og velferð landsmanna, s.s. sveitarfélaga, skóla og stofnana.
  • Vinna að bættu heilsufari þjóðarinnar með því að standa vörð um gæði þjónustu á sviði lýðheilsu og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu.
  • Stuðla að menntun, þróun og rannsóknum á sviði lýðheilsu og beitingu viðurkenndra aðferða við mat á árangri verkefna.
  • Eiga samskipti við félagasamtök um lýðheilsu á erlendum vettvangi.

Starf félagsins grundvallast á hugmyndum um jafnræði til heilbrigðis. Félagið leggur áherslu á félagslegt réttlæti, jafnrétti, tjáningarfrelsi, frið, gagnkvæma virðingu og umburðarlyndi í samskiptum og skoðanaskiptum. Félagið skal eiga samskipti við félagasamtök um lýðheilsu á erlendum vettvangi.

Á stofnfundinum var kosin stjórn félagsins og er formaður þess Geir Gunnlaugsson yfirlæknir Miðstöðvar heilsuverndar barna.

Hægt er að gerast stofnfélagi til janúarloka árið 2002. Hjá Landlæknisembættinu veitir Anna Björg Aradóttir allar nánari upplýsingar. Netfang hennar er: annabara@landlaeknir.is


til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli